well well þá er þetta frí brátt á enda ...
já skólinn byrjar aftur á mánudaginn næsta. Ég ætlaði að
sækja stundaskránna í dag en enda líklegast með því að gera
það á morgun. Er ekkert voðalega spennt fyrir þessum mánuði,
þarf að kaupa skólabækur og er maður ekkert voðalega vel
stemd í peningamálum ... æjj þetta reddast, á maður ekki
alltaf að hugsa þannig??
En næsta laugardag verður eitthver veisla hérna
heima, þar sem pabbi gamli varð fimmtugur 2.janúar, svo kemur að
mér núna 14.janúar þá verður mín orðin 23.ára ... ohh mér
fynnst tíminn allt of fljótur að líða, en það er kanski ágætt þá
verður skólinn fyrr búin
og verslunarmannahelgin kemur fyrr en
maður heldur
jeee get ekki beðið
hahaha ég veit ég er
klikkuð að vera með það á heilanum en það er bara svooooo gaman á
þjóðhátíð 
Rebekka er svooo sæt í sér og bauðst til að vera
með Brúnó á meðan á veislunni stendur
þannig að sæti strákurinn
minn þarf ekki að fara á hundahótel
ohh það er sko mikill léttir
þar sem að það er sko ekki það skemmtilegasta sem ég geri fyrir
hundinn, kemur alltaf algjörlega raddlaus til baka, svangur og
þreyttur.
Mig langar dáldið að kíkja á þetta minnsirkus
afmæli núna á laugardaginn, kanski að maður skelli sér á smá djamm
þar svona þegar líða fer á afmælið, en málið er að það er þegar
búið að bjóða mér í annað afmæli, tvítugsafmæli hjá vin bróður míns
og mig langar líka þangað.... ennn það er víst ekki hægt að gera
allt í einu, þannig að ég verð að velja úr..
Furðuleg frétt ....
!!!!!
En ég var að lesa frétt um fólk út í útlöndum, man ekki á hvaða
landi... en það var að skoða eitthverja hella og urðu fyrir því
ömurlega óhappi að læsast inn í hellinum þar sem að stór og þrekin
kona hrasaði og lokaði fyrir útgönguleiðina.... já hún lokaði fyrir
eina opið út úr göngunum og voru þar 10.manns fastir inn í hellinum
í 10.heila tíma, bæði börn og fullorðin. En tveir aðilar voru
sykursjúkir og einn með slæman astma og náðu björgunarsveitamenn að
smeigja sér eitthvernveginn fyrir ofan konuna og koma insúlíni,
súkkulaði og astmalyfir ásamt eitthverju fleira til fólksins. En já
björgunaraðgerðin endaði með því að konan var smurð öll með
matarolíu og hraunið í kringum hana líka og kostaði þessi
björgunaraðgerð heilar 400.000kr íslenskar krónur..... Greyið konan
ég sárvorkenni henni þvílíka niðurlæging.... 
Enn ætla að láta þetta nægja í bili, hafið það gott í dag kveðja
Telma
p.s. hef engan tíma til að fara yfir stafsetningarvillur ... svo
lítið fram hjá því
okí